Powerful
Foolproof
Mobile
App compatible
Audio reactive
10+ hrs playtime

Augnablikið ógleymanlegt

Soundboks Mix breytir hversdagsleikanum í ógleymanlega upplifun með tærum og kröftugum hljómi sem dregur aldrei úr gæðum. Hátalarinn aðlagast hvaða umhverfi sem er og fylgir partíinu hvert sem það fer. Þú getur auðveldlega fínstillt hljóðprófíla og tengt saman hátalara á augabragði, svo hægt sé að fagna án málamiðlana þegar stemningin magnast.

Risa hljómur í litlum kassa.

Skilvirkni er millinafn Soundboks Mix. Hann er nógu hávær fyrir allan hópinn en jafnframt það meðfærilegur að þú getur flutt hann einn síns liðs. Við höfum heldur ekki fórnað rafhlöðunni – tónlistin mun endast lengur en þú sjálfur, hvert sem þú ferð með hana.

Við allar aðstæður

Partí geta verið stjórnlaus og ófyrirsjáanleg. Soundboks Mix er nánast óbrjótanlegur. Hann er skvettuheldur, veðurþolinn og harður af sér – svo góða stemningin er aldrei í hættu. Hátalarinn skartar hinum klassíska Soundboks-stíl þar sem útlit og gæði fara fullkomlega saman.

Stýrðu stemmningunni beint úr Soundboks appinu