Innadyra og utandyra
Kraftmikið en fislétt
Þolir hvað sem er
Fer með þér hvert sem er

Ótrúlegur kraftur í nettri hönnun.

Rider sameinar fislétta hönnun og gríðarlegan hljómstyrk – engin þörf á að velja annaðhvort eða.

Hver sagði að stærðin skipti máli?

Ertu að leita að hámarks hljóði í litlum pakka? Þessi hátalari kemur á óvart. Gríðarlegur hljómstyrkur miðað við stærð. Farðu létt með hann í hendi, skelltu honum í bakpokann eða á reiðhjólið. Með útskiptanlegri rafhlöðu sem hefur endalaust úthald er Rider alltaf tilbúinn í fjörið, hvar sem er.

Engar áhyggjur

Lítill rammi hátalarans þolir mikil högg, byltur og hvers kyns veðurfar. Hver sem er getur kveikt á ótrúlegum krafti Soundboks Rider á svipstundu: kveiktu bara, tengdu og spilaðu. Meiri tími í góðar minningar, minni tími í uppsetningu og áhyggjur.

Alltaf tilbúinn í óvissuna

Hönnun sem mætir öllum áskorunum, hvar sem þú berð niður. Slakaðu á eða skrúfaðu upp í botn – veldu úr forstilltum hljóðheimum eða búðu til þinn eigin til að fá nákvæmlega rétta hljóminn. Stilltu tóninn eftir stemningunni. Hátalari sem býður upp á svo mikinn sveigjanleika er sniðinn fyrir óvænt ævintýri.

Stýrðu öllu með appinu

Viltu stilla EQ eftir stemningu? Búa til þinn eigin hljóðprófíl? Læsa og tryggja SOUNDBOKS? Uppfæra í hámarks frammistöðu? Allt þetta gerist í appinu.

Lyklar, veskið, síminn, Rider

Soundboks Rider er meðfærilegasti partíhátalari allra tíma. Ósvikin SOUNDBOKS-kraftur í fisléttri hönnun, hannaður fyrir ævintýrin. Þegar partístemningin grípur þig á ferðinni ert þú ávallt tilbúinn.

Hljóð

Amplifier
2 × Texas Instruments 72W/20W RMS Class-D amplifiers in PBTL mode

Driver Units
1 × 8" Woofer
1 × 1.2" Tweeter

Acoustics
Max SPL 118 dB
Effective frequency range: 40 Hz - 20 kHz
Soundboks Adaptive Bass Enhancer DSP

Hönnun

Weight
6,5 kg

Dimensions
35 x 24 x 20 cm (H × W × D)

Materials
ABS and polycarbonate cabinet
Silicone ball corners
Detachable steel grill (and logo)

Features
IP66
Carry Handle
Mount for Add-On
Carrying Strap (bought separately)

UI Panel
Volume control knob with LED indicators
Power On/Off button
Bluetooth LED indicator

Rafhlaða

Life (with The Battery)
35 hours at mid-volume
8 hours at full volume
2 hours full recharge with The Charger

Cell Type
12.8V, 7.8Ah Lithium Iron Phosphate (LiFePO4)
99.84 Wh or 7.8 Ah capacity
Temperature range:
Charge condition: 0°C to 45°C
Discharge condition: -15°C to 55°C

Design
Reinforced ABS casing
5-step LED battery-life indicator
Heavy-duty DC-connector
Dirt cover over USB connector
Carry strap
Battery charge LED indication
Short circuit protection
Overheat protection

Output (USB C)
10W USB PD, 5v 2A

Tengimöguleikar

Wireless
Bluetooth 4.2

Wired
1 × 3.5mm AUX input

Appið

Sound settings
Volume adjustment
Sound Profiles optimized for different spaces and occasions
Custom EQ
True stereo roles (left/right/mono)

Connection & Access
Remotely disconnect or power off
Auto-connect for Bluetooth audio
Security PIN code for app and audio connection

Firmware & Warranty
Firmware updates via the app for sound and performance upgrades

Hvað er í kassanum?
Soundboks Rider
Soundboks Rider
Soundboks Rafhlaðan
Soundboks Rafhlaðan
Leiðbeiningar
Leiðbeiningar
Spurt & svarað

Af hverju ætti ég að velja Soundboks Rider? Við hönnuðum þennan hátalara fyrir áhyggjulausan lífsstíl, óvænt ævintýri og skemmtilegar samverustundir. Hann býr yfir þeim léttleika og rafhlöðuendingu sem þarf til að fara hvert sem er – og nægum krafti til að rífa upp stemninguna þegar mætt er á svæðið. Ef þú ert týpan sem gerir sjaldan plön, fylgir þeim enn síður eða vilt einfaldlega hafa alla valkosti opna, þá er Rider alltaf skrefi á undan.

Við hvaða aðstæður hentar Soundboks Rider best? Þegar lífið er á ferðinni. Hvort sem þú ert í garðinum, á ströndinni, uppi á fjalli eða að hita upp fyrir leikinn, þá skiptir öllu máli að geta tekið sig upp með engum fyrirvara. Rider er einmitt þannig: ávallt tilbúinn í næsta ævintýri.

Af hverju er Soundboks Rider ekki með TeamUp? Þessi hátalari er hannaður til að standa einn og sér. Hann er ekki hugsaður sem viðbót við stærra kerfi. Við þær aðstæður þar sem hann nýtur sín best dugar alltaf einn hátalari – í óundirbúnum og nánari samkomum frekar en stórviðburðum sem skipulagðir eru langt fram í tímann. Þess vegna þótti TeamUp óþarfur eiginleiki hér.

Notar Soundboks Rider sömu rafhlöðu og aðrir Soundboks hátalarar? Já, við gættum þess að halda samræmi þar.

Er Soundboks Rider með Pro Panel tengiborð? Nei, Soundboks Rider er ekki með Pro Panel. Hönnunin er höfð einföld og stílhrein, en hátalarinn er engu að síður með AUX-tengi fyrir hljóðsnúrur.

Af hverju fylgir ekki hleðslutæki með Soundboks Rider? Vegna tilskipunar Evrópusambandsins um fjarskiptabúnað (RED) fylgir hleðslutæki ekki lengur með hátölurunum okkar. Markmiðið er að draga úr rafeindaúrgangi með því að hvetja fólk til að nota USB-C hleðslutæki sem það á nú þegar. Ef þig vantar hleðslutæki er hægt að kaupa The Charger sérstaklega.

Hvaða fylgihlutir passa við Soundboks Rider? The Strap 2.0 (burðarólin), The Battery (rafhlaðan) og The Charger (hleðslutækið).

Er hægt að taka framgrillið af Soundboks Rider? Algjörlega! Framgrillið er laust og auðvelt að fjarlægja, hvort sem þú vilt sérsníða útlitið eða þrífa hátalarann.